Störf laus til umsóknar

Bókari

Þekkt þjónustufyrirtæki óskar eftir að ráða vanan bókara til starfa.



Vinnutími er frá kl. 08:00/09:00 til kl. 16:00/17:00.

Starfssvið:

Færsla bókhalds
Afstemmingar
Almenn bókhaldsstörf

Hæfniskröfur:

Haldbær reynsla og þekking á bókhaldi
Nákvæmni og vönduð vinnubrögð
Góð almenn tölvukunnátta

Ath. um er að ræða tímabundna afleysingu til 8 mánaða.

 Sækja um

Umsjón með eldhúsi

Dagvistin Vitatorgi óskar eftir umsjónarmanni í lítið eldhús/borðstofu virka daga frá kl. 8-16.



Á Vitatorgi er dagþjálfum fyrir fólk sem greinst hefur með heilabilunarsjúkdóma. Þar koma 18 manns til þjálfunar virka daga frá kl. 8-16.
Lögð er áhersla á létt og þægilegt andrúmsloft.

Starfið felst m.a. í undirbúningi og framreiðslu morgunverðar og síðdegiskaffis. Einnig móttöku hádegisverðar frá framreiðslueldhúsi auk umhirðu borðstofu.

Hæfniskröfur:

Góð almenn menntun
Þekking á meðferð matvæla
Reynsla af störfum í eldhúsi æskileg
Hæfni í mannlegum samskiptum, reglusemi og snyrtimennska
Góð íslensku kunnátta skilyrði

Launakjör samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Eflingar.

Nánari upplýsingar veitir Ágústa Helgadóttir deildarstjóri.
Netfang:agusta.helgadottir@reykjavik.is
Sími: 411 9466

Umsóknarfrestur er til og með 15. febrúar.

 Sækja um

Þjónustustjóri

Bíla- og þjónustuverkstæði óskar eftir að ráða þjónustustjóra.



Um fullt starf er að ræða.

Starfssvið:

Umsjón með verkstæði
Samskipti við birgja
Öflun tilboða
Almenn afgreiðsla
Þáttaka í erlendum innkaupum
Þátttaka í stefnumótun og markaðssetningu

Hæfniskröfur:

Þekking á bílum og varahlutum
Þekking og áhugi á viðgerðum
Jákvæðni og dugnaður
Góð almenn tölvukunnátta
Góð enskukunnátta

 Sækja um

Bókhald

Rótgróið verslunarfyrirtæki óskar eftir að ráða töluglöggan einstakling til starfa við bókhald.



Vinnutími er frá kl. 08:00/09:00 til kl. 16:00/17:00.

Starfssvið:

Færsla bókhalds
Aðstoð við afstemmingar


Hæfniskröfur:

Menntun og/eða reynsla á sviði bókhalds
Góð almenn tölvuþekking
Þekking á TOK eða sambærilegu bókhaldskerfi mikill kostur
Nákvæm og vönduð vinnubrögð

 Sækja um

Sölumaður

Fyrirtæki á sviði sjávarútvegs óskar eftir að ráða öflugan sölumann til starfa.



Um fullt starf er að ræða.

Viðkomandi mun starfa bæði á innlendum og erlendum markaði og þarf að vera tilbúinn að ferðast tölvert erlendis vegna starfsins.

Starfssvið:

Öflun nýrra viðskiptavina
Viðhald núverandi viðskiptatengsla
Samskipti við viðskiptavini
Tilboðs og samningagerð

Hæfniskröfur:

Góð enskukunnátta skilyrði
Góð þekking á Norðurlandamáli mikill kostur
Góð almenn tölvukunnátta
Reynsla og færni í sölumennsku

 Sækja um

Forritari

Fyrirtæki er starfar meðal annars á sviði gagnavinnslu óskar eftir að ráða forritara til starfa.



Hæfniskröfur:

Menntun/reynsla á sviði hugbúnaðargerðar
Þekking á JavaScript/HTML/CSS og Jquery æskileg
Þekking á PHP og Python æskileg

 Sækja um

Meirapróf/vinnuvélaréttindi

Fyrirtæki á sviði jarðvegsframkvæmda og niðurrifsverkefna óskar eftir að ráða starfsmann.



Um fullt starf er að ræða.

Æskilegt er að viðkomandi hafi meirapróf og/eða vinnuvélaréttindi.

 Sækja um

Sölumaður

Þekkt þjónustufyrirtæki óskar eftir að ráða metnaðarfullan einstakling í starf sölumanns.



Um fullt starf er að ræða.

Viðkomandi þarf að vera reiðubúinn til að koma fram fyrir hóp fólks og tjá sig og vera nokkuð á ferðinni vegna kynninga.

Starfssvið:

Sala til félaga og hópa
Viðhald núverandi viðskiptasamninga og eftirfylgni
Kynningar á vörum fyrirtækisins
Samninga- og tilboðsgerð
Útsending skilaboða og tilboða til viðskiptavina

Hæfniskröfur:

Grunnháskólamenntun,B.A.,B.S. gráða eða sambærilegt kostur
Góð almenn tölvukunnátta
Ríkir söluhæfileikar
Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði í starfi
Hæfni í mannlegum samskiptum

 Sækja um

Þjónustufulltrúi

Þekkt viðskiptaþjónusta í Keflavík óskar eftir að ráða þjónustulundaðan og duglegan einstakling til starfa.



Vinnutími er frá kl. 08.00/09:00 til kl. 16:00/17:00.

Um er að ræða starf við bakvinnslu ýmiskonar.

Hæfniskröfur:

Skipulagshæfileikar
Rík þjónustulund
Tölugleggni
Góðir samskiptahæfileikar
Góða almenn tölvukunnátta
Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði

ATH um tímabundna afleysingu er að ræða í 6 mánuði.

 Sækja um

Verslunarstarf/hlutastarf

Leitum að söludrifnum og þjónustulunduðum einstaklingi í hlutastarf í tískuvöruverslun á höfuðborgarsvæðinu.



Vinnutími er annan hvorn fimmtudag frá kl. 14:00 til kl. 21:00 og annan hvorn sunnudag frá kl. 13:00 til kl. 18:00.

Starfið er fólgið í afgreiðslu og ráðgjöf til viðskiptavina.

Hæfniskröfur:

Áhugi á tísku og fatnaði
Þægileg og góð nærvera
Falleg og fáguð framkoma

Möguleiki er á auknu starfshlutfalli.

 Sækja um

Móttökuritari/50% starf e.h.

Þekkt þjónustufyrirtæki óskar eftir að ráða þjónustulundaðan einstakling með vandaða framkomu til starfa sem móttökuritari.



Vinnutími er frá kl. 12:00 til kl. 16:30.

Starfssvið:

Móttaka og símavarsla
Móttaka og frágangur á pósti
Umsjón með flugbókunum
Ýmis tilfallandi skrifstofustörf

Hæfniskröfur:

Góð almenn tölvukunnátta
Góð íslenskukunnátta og einhver enskukunnátta
Rík hæfni í mannlegum samskiptum
Reynsla af sambærilegum störfum mikill kostur

 Sækja um

Móttökuritari/50% starf f.h.

Þekkt þjónustufyrirtæki óskar eftir að ráða þjónustulundaðan einstakling með vandaða framkomu til starfa sem móttökuritari.



Vinnutími er frá kl. 08:30 til kl. 13:00.

Starfssvið:

Móttaka og símavarsla
Móttaka og frágangur á pósti
Umsjón með flugbókunum
Ýmis tilfallandi skrifstofustörf

Hæfniskröfur:

Góð almenn tölvukunnátta
Góð íslenskukunnátta og einhver enskukunnátta
Rík hæfni í mannlegum samskiptum
Reynsla af sambærilegum störfum mikill kostur

 Sækja um

Skrifstofustarf

Þekkt viðskiptaþjónusta á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ráða þjónustulundaðan og duglegan einstakling til starfa.



Vinnutími er frá kl. 08.00/09:00 til kl. 16:00/17:00.

Starfssvið:

Ljósritun, undirbúningur, skönnun og frágangur gagna
Skráningar og listavinnsla
Móttaka og frágangur á pósti
Ýmis önnur tilfallandi verkefni

Hæfniskröfur:

Skipulagshæfileikar
Rík þjónustulund
Tölugleggni
Góðir samskiptahæfileikar
Góða almenn tölvukunnátta
Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði

 Sækja um

Veitingastjóri

Veitingastaðakeðja óskar eftir að ráða ábyrgan og metnaðarfullan einstakling í starf veitingastjóra kvöld- og helgarvaktar.


Unnið er á tvískiptum vöktum 2 daga aðra vikuna og 5 daga hina. Um 72% starfshlutfall er að ræða.

Starfssvið:

Þátttaka í almennum störfum
Ábyrgð á þjónustu og gæðum á sinni vakt

Hæfniskröfur:

Skipulag- og leiðtogahæfileikar
Rík þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
Dugnaður og metnaður í starfi

Starfið hentar jafnt konum sem körlum

 Sækja um

Starfsmaður í pökkun

Innflutnings- og dreifingarfyrirtæki á svið ávaxta og grænmetis óskar eftir að ráða reyklausan einstakling til starfa við pökkun.



Vinnutími er frá kl. 08:00 til kl. 16:00.

Starfið er fólgið í pökkun ávaxta og grænmetis.

 Sækja um

Sölumaður

Innflutnings- og þjónustufyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu leitar að öflugum starfsmanni í fjölbreytt sölu- og þjónustustarf.



Vinnutími er frá kl. 08:00 til kl. 17:00.


Starfssvið:

Þjónusta og samskipti við núverandi viðskiptavini
Öflun nýrra viðskiptavina

Hæfniskröfur:

Menntun á sviði rafvirkjunar, rafeindavirkjunar eða smíði
Létt lund, dugnaður, ósérhlífni og þjónustulund.
Geta til að vinna sjálfstætt og í hópi
Góð tungumálakunnátta nauðsynleg, enska og helst eitt Norðurlandamál
Góð almenn tölvukunnátta

 Sækja um

Afgreiðsla

Leitum að þjónustulunduðum einstaklingi til starfa í þvottahúsi á höfuðborgarsvæðinu.



Vinnutími getur hafist á bilinu frá kl. 10:00 til kl. 12:00 eftir samkomulagi og er til kl. 18:00.

Starfið er fólgið í afgreiðslu og frágangi á þvotti.

Leitað er að einstaklingi með gott viðmót og ríka hæfni í mannlegum samskiptum.

 Sækja um

Rafvirki

Fyrirtæki á sviði innflutnings, framleiðslu og sölu óskar eftir að ráða rafvirkja til starfa á verkstæði og í sölu.



Vinnutími er frá kl. 08:00 til kl. 17:00.

Starfssvið:

Viðgerðir og sala

Hæfniskröfur:

Menntun á sviði rafvirkjunar
Góðir samskiptahæfileikar
Metnaður og vönduð vinnubrögð

 Sækja um

Þjónustufulltrúi

Leitum að talnaglöggum einstaklingi með góða samskiptahæfileika til starfa sem þjónustufulltrúi hjá þekktu þjónustufyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu.



Vinnutími er frá kl. 08:00/09:00 til kl. 16:00/17:00.

Starfssvið:

Móttaka viðskiptavina
Símsvörun
Afgreiðsla
Skjalavinnsla

Hæfniskröfur:

Reynsla af skrifstofu- og/eða þjónustustörfum
Góð almenn tölvukunnátta
Mjög góðir samskiptahæfileikar
Rík þjónustulund
Sjálfstæð vinnubrögð

 Sækja um

Starfsmaður í framleiðslu/production worker

Framleiðslu- og sölufyrirtæki óskar eftir að ráða starfsmann í framleiðslu.



Vinnutími er frá kl. 08:00 - 17:00.

Leitað er að handlögnum einstaklingi og mikill kostur ef viðkomandi býr yfir reynslu af sambærilegum störfum eða reynslu á sviði smíði eða byggingarvinnu. Góð íslensku- eða enskukunnátta ernauðsynleg.

Starfið er fólgið í ýmiskonar vinnslu á gleri og speglum, s.s. skurði, sandblæstri o.þ.h.

 Sækja um

Vélfræðingur/vélstjóri

Fyrirtæki á sviði framleiðslu plastumbúða m.a. fyrir matvælaiðnaðinn óskar eftir að ráða vélfræðing/vélstjóra til starfa.



Um fullt starf er að ræða.

Starfssvið:

Fyrirbyggjandi viðhald og rekstur á framleiðsluvélum og róbótum
Almenn viðgerðarvinna og smíði
Önnur tilfallandi störf

Hæfniskröfur:

Vélfræði eða vélstjóranám
Góð þekking á vökvakerfum
Góð þekking á rafmagni og iðnstýringum
Frumkvæði og drifkraftur
Góð samskiptahæfni

 Sækja um

Starfsmaður í móttöku

Hótel á Suðurnesjunum óskar eftir að ráða þjónustulundaðan og vandaðan einstakling til starfa í móttöku.



Um fullt starf er að ræða og er unnið á vöktum.

Starfssvið:

Móttaka gesta
Umsjón með bókunum á gistingu
Umsjón með uppgjöri
Almenn skrifstofustörf


Hæfniskröfur:

Góð tungumálakunnátta s.s. enska og íslenska
Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
Góð almenn tölvukunnátta
Geta til að starfa undir álagi

 Sækja um

Starfsmaður með meirapróf

Hreinsibílar óska eftir að ráða samviskusaman og vandvirkan einstakling til starfa.



Um fullt starf er að ræða.

Starfið er fólgið í myndun, hreinsun og fóðrun lagna ásamt ýmsum tilfallandi verkefnum.

Hæfniskröfur:

Meirapróf skilyrði
Vinnuvélapróf kostur

 Sækja um

Bókari/hlutastarf

Alþjóðlegt fyrirtæki með höfuðstöðvar á Íslandi óskar eftir að ráða pólskumælandi einstakling í hlutastarf.



Um ca 20% starfshlutfall er að ræða.

Starfssvið:

Færsla bókhalds
Afstemmingar
Almenn bókhaldsstörf

Hæfniskröfur:

Haldbær reynsla/þekking á bókhaldi
Góð pólskukunnátta
Góð kunnátta í íslensku eða ensku
Nákvæm og vönduð vinnubrögð

 Sækja um

Sölufulltrúi

Innflutnings- og þjónustufyrirtæki á sviði matvælaiðnaðar óskar eftir að ráða öflugan sölufulltrúa til starfa.



Vinnutími er frá kl. 08:00 til kl. 16:00.

Starfssvið:

Sala og ráðgjöf til fyrirtækja
Heimsóknir til fyrirtækja
Öflun nýrra viðskiptasambanda
Viðhald núverandi viðskiptatengsla
Samninga- og tilboðsgerð


Hæfniskröfur:

Miklir söluhæfileikar
Reynsla af sölustörfum æskileg
Góð almenn tölvukunnátta
Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði í starfi
Þekking á umbúðageira og/eða matvælaiðnaði kostur

 Sækja um

Vélagæsla

Rótgróið sölu- og framleiðslufyrirtæki óskar eftir að ráða laghentan og vandvirkan einstakling í framleiðsludeild.



Unnið er á 8 tíma vöktum.

Starfssvið:

Umsjón á vélum og tækjabúnaði

Hæfniskröfur:

Áhugi og/eða þekking á vélum og tækjum
Góð almenn tölvukunnátta
Hæfni í mannlegum samskiptum

 Sækja um

Markaðsdrifinn vefstjóri/verkefnastjóri

Fyrirtæki á sviði markaðs- og rekstrarráðgjafar óskar eftir að ráða markaðsdrifinn vefstjóra/verkefnastjóra.


Fyrirtækið rekur meðal annars MarkaðsNetið innan ferðaþjónustu sem heldur úti nokkrum kynningarmiðlum á hótelum, gistiheimilum og upplýsingaþjónustum, bókinni Visitors Guide og Vefsíðunni www.visitorguide.is ásamt vefsíðunum www.veitingastaðir.is og www.restaurants.is. Að auki heldur það úti 7 erlendum síðum á Norðurlöndunum, Frakklandi og Spáni.

Helstu verkefni eru þróun á vefjum, innsetning efnis, hugmyndavinna, markaðssetning, leitarvélagreining, tölvumál, skrif, sala, stefnumótun og fleira.

Hæfniskröfur:

Reynsla og/eða skilningur af vinnu við vefumsjónarkerfi
Umbrotsvinna og hönnun svo sem í Indesign og jafnvel vefhönnun er kostur
Innsýn/þekking á vinnu við leitarvélavinnu kostur
Góð íslensku og enskukunnátta
Skipulögð og öguð vinnubrögð
Góð tölvukunnátta og Internetþekking
Einhver sölureynsla kostur
Rekstrarþekking kostur sem og skilningur á markaðsmálum og innsýn í ferðaþjónustu

Kostur að umsækjandi sé skráður atvinnulaus þar sem Starfsorka styður þetta verkefni.

Einnig kemur til greina að ráða starfsmann í tímabundið verkefni til nokkurra mánaða vegna vef/hönnunar og sölutengdra mála.

 Sækja um

Vaktstjóri

Sportbar á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ráða lipran og samviskusaman einstakling í starf vaktstjóra.



Unnið er á dag- og kvöldvöktum.

Hæfniskröfur:

Menntun á sviði framreiðslu kostur
Reynsla af barstörfum skilyrði
Vönduð framkoma og metnaður í starfi

 Sækja um

Starfsmaður á verkstæði

Fyrirtæki í sölu- og þjónustu við vélknúin ökutæki óskar eftir að ráða verklaginn einstakling til starfa á verkstæði.



Vinnutími er frá kl. 09:00 til kl. 18:00.

Starfssvið:

Viðgerðir og viðhaldsvinna

Hæfniskröfur:

Áhugi og/eða þekking á vélum og tækjum
Góð enskukunnátta kostur
Hæfni í mannlegum samskiptum

 Sækja um

Vélfræðingur/Vélstjóri

Framleiðslu - og sölufyrirtæki óskar eftir að ráða vélfræðing/vélstjóra.



Um fullt starf er að ræða.

Starfssvið:

Fyrirbyggjandi viðhald og rekstur á framleiðsluvélum og róbótum
Almenn viðgerðarvinna og smíði
Önnur tilfallandi störf

Hæfniskröfur:

Vélfræði eða vélstjóranám
Góð þekking á vökvakerfum
Góð þekking á rafmagni og iðnstýringum
Frumkvæði og drifkraftur
Góð samskiptahæfni

 Sækja um

Störf sem ráðið hefur verið í

Viðskiptafræðingur

Framleiðslufyrirtæki á sviði sjávarútvegs óskar eftir að ráða viðskiptafræðing til starfa.

Móttökuritari

Fyrirtæki á sviði hugbúnaðarþjónustu óskar eftir að ráða þjónustulundaðan og vandvirkan einstakling til starfa í móttöku.

Grafískur hönnuður

Fyrirtæki á sviði framleiðslu og dreifingar á afþreyingavörum óskar eftir að ráða grafískan hönnuð til starfa.

Starfsmaður í pökkun

Rótgróið sölu- og framleiðslufyrirtæki óskar eftir að ráða laghentan og vandvirkan einstakling í framleiðsludeild.

Bílstjóri/Lagerstarf

Þekkt innflutningsfyrirtæki óskar eftir að ráða metnaðarfullan einstakling í framtíðarstarf við útkeyrslu og lagerstörf.

Bókari/50% starf

Framleiðslufyrirtæki á sviði sjávarútvegs óskar eftir að ráða öflugan bókara.

Bílstjóri

Innflutnings- og dreifingarfyrirtæki á svið ávaxta og grænmetis óskar eftir að ráða reyklausan einstakling til starfa við útkeyrslu.

Lagerstarfsmaður

Innflutnings- og dreifingarfyrirtæki á svið ávaxta og grænmetis óskar eftir að ráða reyklausan einstakling til starfa á lager.

Umsjón mötuneytis

Rótgróið verslunarfyrirtæki óskar eftir að ráða frábæran og hugmyndaríkan kokk til starfa við umsjón mötuneytis.

Lagerstarfsmaður

Innflutningsaðili á sviði rafbúnaðar leitar að stundvísum,jákvæðum, áreiðanlegum og reyklausum einstaklingi til starfa við vörumóttöku á lager.

Þjónustufulltrúi

Leitum að talnaglöggum og skipulögðum einstaklingi til starfa sem þjónustufulltrúi hjá þekktu þjónustufyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu.

Starfsmaður á verkstæði

Þekkt fyrirtæki á sviði tæknibúnaðar óskar eftir að ráða rafeindavirkja/rafvirkja eða einstakling með haldbæra reynslu af viðgerðum og uppsetningum á tæknibúnaði.

Sérfræðingur í iðnstýringum

Vegna aukinna verkefna óskar öflugt og rótgróið fyrirtæki á sviði vélaþjónustu eftir að ráða kröftugan einstakling með menntun og reynslu af rafmagnshönnun til starfa.

Skrifstofustarf/50% starf

Þekkt innflutningsfyrirtæki óskar eftir að ráða vandvirkan einstakling til starfa við fjölbreytt skrifstofustarf.

Vaktstjóri/Floor manager

Chain of resturants wishes to recruit a floor manager.

Starf í apóteki/hlutastarf

Apótek á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ráða þjónustulundaðan einstakling í hlutastarf.

Ræstingastjóri

Vilt þú sveigjanlegan vinnutíma á góðum launum!!

Skrifstofustarf/50% starf

Félagasamtök á höfuðborgarsvæðinu óska eftir að ráða þjónustulundaðan og skipulagðan einstakling í almennt skrifstofustarf.

Skrifstofustarf

Innflutningsaðili á sviði rafbúnaðar leitar að stundvísum, áreiðanlegum og reyklausum einstaklingi til starfa í innflutningsdeild.

Sölumaður

Rótgróin heildverslun óskar eftir að ráða metnaðarfullan og þjónustulundaðan einstakling í starf sölumanns.

Kerfisstjóri

Þekkt viðskiptaþjónusta á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ráða öflugan kerfisstjóra á upplýsingatæknisvið fyrirtækisins.

Verslunarstarf

Herrafataverslun óskar eftir að ráða snyrtilegan einstakling með ríka þjónustulund til starfa.

Bókari/hlutastarf

Alþjóðlegt fyrirtæki með höfuðstöðvar á Íslandi óskar eftir að ráða spænskumælandi einstakling í hlutastarf.

Skrifstofustarf

Rótgróið og virt fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu leitar að starfsmanni í fjölbreytt og skemmtilegt skrifstofustarf.

Bifvélavirki

Leitum að bifvélavirkja eða einstaklingi með reynslu af viðgerðum til starfa á verkstæði.

Skrifstofustarf/50-60% starf

Öflugt og rótgróið fyrirtæki á sviði vélaþjónustu leitar reyklausum einstaklingi í fjölbreytt skrifstofustarf.

Útgáfu- og markaðsmál/50% starf

Innflutningsaðili á sviði rafbúnaðar leitar að stundvísum, áreiðanlegum og reyklausum einstaklingi til starfa við útgáfu- og markaðsmál.

Þjónustufulltrúi

Sölu- og þjónustufyrirtæki á sviði tæknibúnaðar leitar að starfsmanni til starfa á þjónustusviði.

Bókari/50% starf

Rótgróið verslunarfyrirtæki óskar eftir að ráða reynsluríkan bókara.

Afgreiðsla/hlutastarf

Aktu taktu Ásgarði í Garðabæ óskar eftir að ráða starfsmann í afgreiðslu.